25. ágúst er sérstakari en allir aðrir dagar ársins hjá Lammert-fjölskyldunni í Bandaríkjunum en þann dag eiga allar fjórar dætur Lammert-hjónanna afmæli. Og nei, þær eru ekki fjórburar. Þær eru allar fæddar þennan sama dag en þær fæddust allar með nákvæmlega þriggja ára millibili. Sophia, 9 ára, Giuliana, 6 ára, Mia, 3 ára, og Valentina, rúmlega þriggja vikna, eru allar fæddar 25. ágúst. Móðir stelpnanna segist hafa verið í afneitun fyrir fæðinguna. Ljóst var þó að Valentina vildi halda í hefðina og mætti mánuði fyrir tímann, þann 25. ágúst sl. Nánar á K100.is.