Jóna Ásmundsdóttir fæddist 14. nóvember 1936 á Háeyri (Regin) á Eyrarbakka. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Móbergi á Selfossi 10. september 2024.

Foreldrar Jónu voru Ásmundur Eiríksson, f. í Þórðarkoti í Sandvíkurhreppi 11.10. 1897, d. 26.9. 1981, og Guðlín Katrín Guðjónsdóttir, f. á Gamla-Hrauni í Eyrarbakkahreppi 3.2. 1905, d. 12.7. 1984.

Systkini Jónu voru Eiríkur sem dó í frumbernsku og Helga, f. á Háeyri á Eyrarbakka 30.1. 1942.

Eiginmaður Jónu var Jón Sigurgrímsson, f. 7.5. 1922, d. 29.6. 2008. Börn þeirra eru: 1) Unnur, f. 3.10. 1960. Börn hennar eru Jóhanna, f. 13.10. 1983, Jón Elí, f. 24.10. 1985, og Halldór, f. 16.1. 1992. 2) Ásmundur, f. 22.8. 1962, eiginkona hans er Ufuoma Overo-Tarimo, f. 25.4. 1963. Börn Ásmundar eru Thelma Dröfn, f. 31.1. 1985, og Elvar, f. 25.2. 1988, börn

...