Tvenna Alejandro Garnacho var einn þriggja sem skoraði tvennu.
Tvenna Alejandro Garnacho var einn þriggja sem skoraði tvennu. — AFP/Paul Ellis

Manchester United valtaði yfir Barnsley, 7:0, í 32-úrslitum enska deildabikarsins í fótbolta í gær. Marcus Rashford, Alejandro Garnacho og Christian Eriksen skoruðu tvö mörk hver fyrir United og Antony skoraði eitt. Íslendingaliðin Preston og Brentford eru einnig komin áfram. Hákon Rafn Valdimarsson stóð vaktina í marki Brentford sem vann Leyton Orient 3:1. Stefán Teitur Þórðarson lék fyrstu 68 mínúturnar með Preston sem vann Fulham í vítakeppni.