Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Sumir kaupa sér stóran jeppa eða sumarbústað. Ég ákvað að kaupa mér plötubúð. Maður á að láta drauma sína rætast,“ segir Jóhann Ágúst Jóhannsson, nýr eigandi Reykjavík Record Shop við Klapparstíg.
Jóhann hefur fest kaup á búðinni af Reyni Berg Þorvaldssyni stofnanda hennar sem hyggst snúa sér alfarið að kennslu. Hann tekur við rekstri búðarinnar í dag og lætur jafnframt af störfum sem forstöðumaður Menningarstofu Fjarðabyggðar
...