Ólafur E. Jóhannsson
oej@mbl.is
Áform Mosfellsbæjar um efnistöku úr Seljadalsnámu sem er skammt austan Hafravatns vekja litla hrifningu húseigenda á svæðinu og gerir stjórn Félags sumarhúsaeigenda við Krókatjörn, Myrkurtjörn og Silungatjörn ýmsar athugasemdir við umhverfismatsskýrslu verkefnisins sem nú er til umsagnar í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar.
Í umsögn sinni um umhverfismatsskýrsluna segir félagið hana byggða á röngum forsendum og villandi upplýsingum. Að mati stjórnarinnar mun framkvæmdin hafa verulega neikvæð áhrif á hljóðvist, ásýnd náttúrunnar á umræddu svæði, loftgæði og dýralíf ásamt því að leiða til óafturkræfs rasks á náttúru svæðisins.
Efnistaka hefur ekki farið fram í námunni frá árinu 2016, en samkvæmt fyrirliggjandi áformum er
...