Hvítabjörn kom í land við Höfðaströnd í Jökulfjörðum í gær en tilkynning um björninn barst lögreglu á öðrum tímanum. Lögreglulið frá Ísafirði og séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar voru kölluð til og mættu á svæðið rétt fyrir fjögur
Elínborg Una Einarsdóttir
elinborg@mbl.is
Hvítabjörn kom í land við Höfðaströnd í Jökulfjörðum í gær en tilkynning um björninn barst lögreglu á öðrum tímanum.
Lögreglulið frá Ísafirði og séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar voru kölluð til og mættu á svæðið rétt fyrir fjögur. „Dýrið fannst í fjörunni skammt frá sumarhúsi sem er við Höfðaströnd og var fellt þarna á staðnum. Í sumarhúsinu er ein fullorðin manneskja sem heldur þar til,“ sagði Hlynur Hafberg Snorrason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vestfjörðum, um aðgerðina
...