Um 60 jarðskjálftar mældust nærri Kleifarvatni í gær. Mest virkni var fram eftir morgni en eftir því sem leið á daginn dró úr virkninni. Stærsti skjálftinn mældist 2,9 að stærð snemma í gærmorgun.
Sigríður Kristjánsdóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir ekki gott að segja til um hvort skjálftarnir orsakist af flekahreyfingum eða hvort eldsumbrot við Grindavík valdi þeim. „En það koma líka skjálftar þarna þegar ekki eru eldsumbrot í Grindavík og í Fagradalsfjalli. Því eru meiri líkur á því að þetta séu flekahreyfingar,“ segir Sigríður. Hún bendir þó á að Krýsuvíkurkerfið, sem Fagradalsfjall er hluti af, liggi í gegnum svæðið þar sem skjálftarnir voru.