Gerður Petra Kristjánsdóttir fæddist á Ísafirði 17. desember 1934. Hún lést í faðmi fjölskyldunnar á hjúkrunarheimilinu Móbergi á Selfossi 13. september 2024.

Foreldrar hennar voru Kristján Karl Pétursson, f. 3.5. 1911, d. 27.7. 1972, og Jóna Guðbjörg Sigurðardóttir, f. 21.10. 1905, d. 25.4. 1986.

Systkini Gerðar eru Gunnar Sigurður Kristjánsson, f. 6.12. 1935, d. 11.4. 1984, og Margrét Hólmfríður Kristjánsdóttir, f. 21.9. 1942, maki Kristinn G. Hermannsson, f. 1945.

Árið 1960 giftist Gerður Eysteini Þorvaldssyni, f. 1932, d. 2020. Þau skildu. Dætur þeirra eru Drífa Eysteinsdóttir, f. 20.1. 1955, og Heiður Eysteinsdóttir, f. 18.2. 1960. Maki Drífu er Davíð Kristjánsson, f. 20.5. 1964. Börn Drífu eru: 1) Sandra D. Gunnarsdóttir, f. 29.5. 1970, maki Ólafur Gestsson, f. 1969. Börn Ólafs og Söndru

...