Framkvæmdir við varnir vegna ofanflóða og eða uppkaup húseigna hafa átt sér stað á alls 15 þéttbýlisstöðum frá því að ofanflóðanefnd var komið á fót í kjölfar gildistöku laga um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum árið 1997. Þar af er uppkaupum eigna lokið á sex þéttbýlisstöðum.
Fram kemur í nýrri skýrslu ofanflóðanefndar, að Í lok síðasta árs nam heildarkostnaður við varnarvirki vegna ofanflóða og uppkaup húseigna, á verðlagi í mars 2024, ríflega 35 milljörðum króna. Nefndin hefur unnið á grunni mats Veðurstofu Íslands á líklegu umfangi varna gegn ofanflóðum sem gefið var út í október 1996.
Skortur á fjármagni
Elías Pétursson formaður nefndarinnar segir í skýrslunni að vinna við framkvæmdir vegna varnarvirkja hafi gengið hægar en áætlað var í upphafi vegna þess að fjárheimildir ofanflóðasjóðs, sem stofnaður var
...