Þýski jafnaðarmannaflokkurinn SPD er stærsti flokkurinn á fylkisþinginu í Brandenborg, samkvæmt kosningaúrslitum í gær. Hann rétt svo heldur forystu sinni í fylkinu og hefur örlítið forskot á hægri popúlistaflokkinn Alternative für Deutschland (AfD) …
Agnar Már Másson
agnarmar@mbl.is
Þýski jafnaðarmannaflokkurinn SPD er stærsti flokkurinn á fylkisþinginu í Brandenborg, samkvæmt kosningaúrslitum í gær. Hann rétt svo heldur forystu sinni í fylkinu og hefur örlítið forskot á hægri popúlistaflokkinn Alternative für Deutschland (AfD) en flokkarnir höfðu mælst afar jafnir fram að kosningum.
Samkvæmt talningu féllu 30,9% atkvæða jafnaðarmönnum í skaut en AfD fékk rétt rúm 29% atkvæða. Dietmar Woidke, fylkisstjóri Brandenborgar úr
...