Dagur B. Eggertsson fyrrverandi borgarstjóri fór 26 sinnum til útlanda í embættiserindum á síðastliðnum tveimur árum. Ferðirnar tóku 90 daga og hefur Dagur því dvalið í tæpa þrjá mánuði í útlöndum af þeim 29 mánuðum sem liðnir eru af kjörtímabilinu
Óskar Bergsson
oskar@mbl.is
Dagur B. Eggertsson fyrrverandi borgarstjóri fór 26 sinnum til útlanda í embættiserindum á síðastliðnum tveimur árum. Ferðirnar tóku 90 daga og hefur Dagur því dvalið í tæpa þrjá mánuði í útlöndum af þeim 29 mánuðum sem liðnir eru af kjörtímabilinu.
Þetta kemur fram í svari Reykjavíkurborgar við fyrirspurn Morgunblaðsins.
Nýtti sér einn orlofsdag
Tíðni ferða borgarstjórans jókst verulega eftir myndun nýs meirihluta sumarið 2022, en á fyrra kjörtímabili fór hann 13 sinnum út og 26 sinnum á því rúma hálfa kjörtímabili sem liðið er.
Í tengslum við þessar ferðir tók Dagur út einn föstudag í orlof í febrúar 2020. Þrisvar framlengdi hann eða hóf ferð með því að bæta við dvöl
...