Ekkert hefur frést af sjónvarpsverðlaunum Eddunnar sem boðað var að veitt yrðu nú á haustmánuðum. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins gætir nokkurrar óþreyju meðal sjónvarpsfólks sem vill fá sína uppgjörshátíð eins og kollegar þeirra í kvikmyndabransanum
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Ekkert hefur frést af sjónvarpsverðlaunum Eddunnar sem boðað var að veitt yrðu nú á haustmánuðum. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins gætir nokkurrar óþreyju meðal sjónvarpsfólks sem vill fá sína uppgjörshátíð eins og kollegar þeirra í kvikmyndabransanum.
Í lok árs 2023 sendi stjórn Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar frá sér tilkynningu þar sem fram kom að breytingar yrðu gerðar á Eddunni í ár. Stærstu breytingarnar voru að kvikmyndaverðlaun og sjónvarpsverðlaun yrðu frá og með 2024 afhent hvor í sínu
...