Knattspyrnumarkvörðurinn Cecilía Rán Rúnarsdóttir hefur farið frábærlega af stað með Inter Mílanó í ítölsku A-deildinni en hún gekk til liðs við félagið á láni frá þýska stórliðinu Bayern München í sumar. „Þetta hefur gengið framar björtustu vonum,“ sagði Cecilía Rán í samtali við Morgunblaðið. » 22-23