Guðmundur Örn Guðjónsson, Baddi, fæddist 20. ágúst 1972. Hann lést 3. september 2024.

Hann var jarðsunginn 19. september 2024.

Elsku besti Baddi okkar, það sem lífið getur stundum verið ósanngjarnt. Það er svo sárt að hugsa til þess að þú sért farinn. Minningarnar streyma yfir okkur og þakklætið fyrir tímann okkar saman er gríðarlegt. Frá því að við hittum þig fyrst tók brosið þitt og faðmlag alltaf á móti okkur.

Við vorum svo heppnar að fá að alast að miklu leyti upp hjá ykkur í Huldugilinu og með strákunum ykkar. Heimili ykkar er eins og okkar annað heimili sama hvar þið búið, því heima hjá ykkur hefur okkur alltaf liðið vel og þú áttir stóran hlut í því ásamt Ásdísi og strákunum. Við erum þakklátar fyrir allar þær minningar sem við eigum um þig og þær hlýja okkur nú. Jólin og áramótin sem við

...