Svanfríður María Guðjónsdóttir fæddist á Ísafirði 30. desember 1940. Hún lést á Hrafnistu í Reykjavík 13. september 2024.

Foreldrar hennar voru María Rebekka Sigfúsdóttir verslunarmaður, f. 21. ágúst 1922, d. 18. apríl 1985, og Guðjón Halldórsson skipstjóri, f. 18. ágúst 1917, d. 2. október 1991. Þau skildu. María giftist Gylfa Gunnarssyni, f. 28. desember 1920, d. 10. maí 2000. Guðjón kvæntist Karlottu Einarsdóttur, f. 3. október 1925, d. 3. júlí 2003.

Systkini Svanfríðar eru Gylfi Guðjónsson, f. 2. maí 1944, Selma Guðjónsdóttir, f. 2. október 1945, Sigríður Gylfadóttir, f. 21. nóvember 1946, Helga Gylfadóttir, f. 8. janúar 1949, Þorgerður Gylfadóttir, f. 6. september 1950, d. 18. febrúar 1951, Þorgerður María Gylfadóttir, f. 31. október 1952, Guðbjörg Guðjónsdóttir, f. 31. október 1951, Helga Guðjónsdóttir, f. 7. ágúst 1953, og Halldór

...