— Ljósmynd/Gunnar Sigurgeirsson

Tveir létust, hvor í sínu slysinu, á Suðurlandi og Norðurlandi vestra í gær. Í Bláskógabyggð lést erlendur ferðamaður eftir að hafa fallið í Hlauptungufoss í Brúará. Tilkynning um slysið barst klukkan 13 og var allt tiltækt björgunarlið kallað til. Þá lést ökumaður bifreiðar sem hafnaði utan vegar norður af Skagaströnd á þriðja tímanum í gær. Bifreiðin valt og lenti ofan í Fossá á Skaga. Farþegi í bílnum var fluttur á sjúkrahús.