Talið er að andlát hjónanna sem fundust látin á heimili sínu í Bolungarvík 27. maí síðastliðinn hafi ekki borið að með saknæmum hætti. Orsökin var langvarandi veikindi þeirra beggja. Þetta kemur fram á Facebook-síðu lögreglunnar á …
Talið er að andlát hjónanna sem fundust látin á heimili sínu í Bolungarvík 27. maí síðastliðinn hafi ekki borið að með saknæmum hætti. Orsökin var langvarandi veikindi þeirra beggja.
Þetta kemur fram á Facebook-síðu lögreglunnar á Vestfjörðum en skýrsla með niðurstöðu réttarmeinafræðings sem annaðist réttarkrufningu hjónanna hefur borist lögreglunni. Annað hjónanna hafði sést utandyra nokkrum dögum áður en þau fundust látin á heimilinu. Ekki var hægt að ákvarða nákvæman dánartíma þeirra.