A Very Royal Scandal er þriggja þátta leikin mynd frá Amazon þar sem fjallað er um viðtalið sem varð til þess að Andrés Bretaprins missti ekki bara konunglegan titil heldur einnig æruna. Leikarinn Michael Sheen leikur Andrés prins og Ruth Wilson…
Maitlis Tók frægt viðtal við Andrés prins.
Maitlis Tók frægt viðtal við Andrés prins. — Wikipedia/Gothick

Kolbrún Bergþórsdóttir

A Very Royal Scandal er þriggja þátta leikin mynd frá Amazon þar sem fjallað er um viðtalið sem varð til þess að Andrés Bretaprins missti ekki bara konunglegan titil heldur einnig æruna. Leikarinn Michael Sheen leikur Andrés prins og Ruth Wilson leikur Emily Maitlis sem tók viðtalið fræga þar sem meðal annars var spurt um vinskap prinsins við kynferðisafbrotamanninn Jeffrey Epstein.

Margar sögur fara af hroka, yfirlæti og heimsku Andrésar prins. Allt endurspeglast þetta í frábærri túlkun Sheen á prinsinum. Það er Sheen sem ber þættina uppi. Hann sýnir okkur mann sem nýtur allra forréttinda sem hægt er að njóta og telur það algjörlega sjálfsagt. Hann niðurlægir þjónustufólk og sparar ekki blótsyrðin. Hann hefur ekkert stöðumat enda er hann dómgreindarlaus og steypir sér sjálfur í ógæfu.

Ruth Wilson er fín leikkona en í túlkun hennar verður fréttakonan Emily

...