Nokkrir dagar eru í að bleikur október hefjist en margar kvenhetjur taka þátt í að styrkja bleiku slaufuna í ár. Sassy er einn af styrktaraðilum í ár og gefur í kvöld út dagatal með ljósmyndum af 12 konum sem hafa greinst með krabbamein eða farið í áhættuminnkandi aðgerðir vegna þess. Konurnar stilla sér upp í fallegum undirfötum frá AnaOno og fagna þannig fjölbreytileika og fegurð kvenlíkamans. Allur ágóði rennur til Bleiku slaufunnar. Aníta Rún eigandi Sassy mætti í Ísland vaknar í gær og ræddi um dagatalið.

Nánar á K100.is.