Elín Sigríður Ingimundardóttir fæddist 10. júlí 1964. Hún lést á Landspítalanum 9. september 2024 í faðmi fjölskyldunnar.

Foreldrar hennar eru Kristín Rut Hafdís Benediktsdóttir, f. 1943, og Ingimundur Magnússon, f. 1939. Þau skildu. Systur Elínar eru Ingibjörg Sólrún, f. 1961, maki Bragi V. Bergmann, og Magnea Steinunn, f. 1968. Fóstursystir er Guðmunda Jóna Colyer, f. 1954, maki Jerry Colyer. Hálfsystkini, samfeðra, eru Magnús Sveinn, f. 1987, og Sigríður Ósk, f. 1993, maki Kristján Daðason.

Dóttir Elínar og Kjartans Magnússonar, f. 1962, er Kristín Rut, f. 1982. Eiginmaður hennar er Örvar Þór Kristjánsson, f. 1978. Dætur þeirra eru Snædís Eva og Ísold Emma. Sonur Örvars er Jökull Bóas. Hálfsystur Kristínar Rutar, samfeðra, eru Helen María, f. 1994, og Embla Dögg, f. 1997.

Eftirlifandi

...