Bikarmeistarar KA og HK gerðu jafntefli, 3:3, í fyrstu umferð neðri hluta Bestu deildar karla í knattspyrnu á Akureyri í gær.

HK lék allan síðari hálfleikinn einum leikmanni færri eftir að Atli Hrafn Andrason fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt undir lok fyrri hálfleiks. Þá var staðan 1:2, HK í vil. KA sneri taflinu við í síðari hálfleik áður en HK jafnaði metin undir lok leiks. » 64