Meiddur Kylian Mbappé fer meiddur af velli á þriðjudagskvöld.
Meiddur Kylian Mbappé fer meiddur af velli á þriðjudagskvöld. — AFP/Javier Soriano

Franska knattspyrnustjarnan Kylian Mbappé verður frá keppni næstu þrjár vikurnar vegna meiðsla í læri sem hann varð fyrir í sigri Real Madríd gegn Alavés í spænsku 1. deildinni á þriðjudagskvöld. ESPN greinir frá. Er um áfall fyrir Real Madríd að ræða, þar sem Mbappé hefur skorað í fimm leikjum í röð og spilað vel. Hann missir að minnsta kosti af leikjum Real gegn Atlético og Villarreal í deildinni og svo Lille í Meistaradeild Evrópu.