Rautt Hannes Grimm fer í bann eftir að hafa fengið rautt spjald.
Rautt Hannes Grimm fer í bann eftir að hafa fengið rautt spjald. — Morgunblaðið/Eggert

Handknattleiksmaðurinn Kári Tómas Hauksson leikmaður HK hefur verið úrskurðaður í eins leiks bann af aganefnd HSÍ fyrir mjög ódrengilega ­hegðun. Kári fékk rautt spjald í leik HK og Fjölnis í úrvalsdeildinni síðastliðið föstudagskvöld. Þá er Hannes Grimm leikmaður Gróttu einnig kominn í eins leiks bann fyrir rauða spjaldið sem hann fékk gegn Fram í sömu deild kvöldið áður vegna sérstaklega hættulegrar aðgerðar.