Einar Valdimar Ingvarsson fæddist í Reykjavík 21. nóvember 1952. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 16. september 2024.

Foreldrar Einars voru Þorgerður Magnúsdóttir, f. 1925, d. 2011, og Ingvar Gísli Jónasson, f. 1895, d. 1975.

Einar lærði plötu- og ketilsmíði og vann við það meðan heilsan leyfði.

Sambýliskona Einars er Helga Ingvarsdóttir, f. 1955. Sonur Einars er Ævar Örn, f. 1985, og fósturdóttir Einars er Vilhelmína Una Hjálmarsdóttir, f. 1978. Börn hennar eru Ólafur Reynir, f. 1999, Embla Líf, f. 2004, Hjálmar Bernhard, f. 2010, og Kjartan Valur, f. 2017.

Útför Einars fer fram frá Sandgerðiskirkju í dag, 27. september 2024, klukkan 13.

Eitt sinn verða allir menn að

...