Margra ára gömul internetráðgáta hefur loks verið leyst en um er að ræða leit að óþekktri stjörnu, sem kölluð er „Stjarna númer sex“ (e. Celebrity Number Six). Hún á sinn eigin spjallþráð (e. subreddit) á Reddit þar sem netverjar hafa í fimm ár reynt að finna út hver hún er. Stjarnan sást fyrst sem óskýr mynd á gardínuefni á milli fjölda annarra frægra stjarna, svo sem Jessicu Alba og Orlando Bloom. Engum tókst þó að finna út hver þessi tiltekna stjarna var – fyrr en í þessum mánuði: Spænsk fyrirsæta að nafni Leticia Sarda. Nánar um Leticiu Sarda á K100.is.