Margrét Birna Aðalsteinsdóttir fæddist í Hátúni, Búðakaupstað við Fáskrúðsfjörð 10. ágúst 1935. Hún lést á Borgarspítalanum 8. ágúst 2024.

Foreldrar hennar voru Aðalsteinn Valdimar Björnsson, f. 12.12. 1909, d. 10.5. 1961, og Þórunn Jóhannesdóttir, f. 1.12. 1915, d. 12.3. 1989, bæði fædd á Búðum í Kolfreyjustaðarsókn.

Systkini Margrétar: Hans Kristinn, f. 1936, d. 2022, Jóhanna Guðfinna, f. 1939, d. 2021, Tómas, f. 1940, d. 1945, Guðný, f. 1942, Aðalheiður, f. 1945, Tómas, f. 1946, d. 1961, Lára Guðbjörg, f. 1947, d. 2015, Sigríður, f. 1949, Jónína, f. 1951, Örn, f. 1954, og Axel, f. 1956.

Margrét giftist Teiti Kristjánssyni frá Feigsdal í Arnarfirði 31.3. 1956. Foreldrar hans: Kristján Kristófersson, f. 12.8. 1883 á Siglunesi, Barðaströnd, d. 10.9. 1969, og Jóhanna Pálsdóttir, f. 19.4. 1893

...