Sameining Grindavík og Njarðvík mæta sameinuð til leiks að ári.
Sameining Grindavík og Njarðvík mæta sameinuð til leiks að ári. — Morgunblaðið/Arnþór

Kvennalið Grindavíkur hefur sameinast Njarðvík í kvennaknattspyrnu og munu félögin leika undir nafninu Grindavík/Njarðvík frá og með næstu leiktíð. Í samtali við Víkurfréttir sagði Brynjar Freyr Garðarsson, formaður knattspyrnudeildar Njarðvíkur, að þetta væri heillaskref fyrir félagið. „Þetta er nokkuð sem við höfum unnið að síðustu árin, að hafa meistaraflokk kvenna, og nú er komið að því,“ sagði Brynjar.