Endurkoma Birkir Heimisson er á leið til Valsmanna í annað sinn.
Endurkoma Birkir Heimisson er á leið til Valsmanna í annað sinn. — Morgunblaðið/Eggert

Knattspyrnumaðurinn Birkir Heimisson er á leiðinni til Vals á nýjan leik en Þór, uppeldisfélag miðjumannsins, keypti Birki í vor. 433.is segir Valsmenn vera við það að kaupa Birki til baka eftir stutt stopp fyrir norðan. Birkir er 24 ára gamall Akureyringur en hann kom til Vals árið 2020 frá hollenska liðinu Herenveen. Birkir var í lykilhlutverki hjá Þór í sumar en liðið var ekki nálægt því að vinna sér inn sæti í efstu deild, endaði í 10. sæti í 1. deild.