Gunnar Kristinn Gunnarsson fæddist 21. febrúar 1950. Hann lést 4. september 2024.

Útför hans fór fram 14. september 2024.

Íþróttastarf er byggt upp af fólki sem hefur í sjálfboðavinnu lagt metnað sinn og framlag til íþrótta. Gunnar var einn af þessum burðarásum sem handknattleikshreyfingin naut góðs af. Ferill Gunnars í þágu handboltans var ótrúlega fjölbreyttur, hann lagði víða hönd á plóg án þess að vekja sérstaka athygli á því. Hann lagði sitt af mörkum í öllum þáttum handboltans. Hann var leikmaður með Þrótti, stjórnarmaður, dómari, eftirlitsmaður á leikjum bæði hér á landi og á vegum Evrópska og Alþjóðahandknattleikssambandsins, stjórnarmaður í HSÍ, formaður aganefndar, þingforseti og fleira mætti telja. Alltaf tók hann þessi verkefni að sér léttur í lund og leysti með sóma. Aldrei neitaði hann ósk um aðstoð heldur gekk í verkefnin

...