Meistaradeildin Fjórar landsliðskonur leika í riðlakeppninni.
Meistaradeildin Fjórar landsliðskonur leika í riðlakeppninni. — Morgunblaðið/Eggert

Fjórar íslenskar landsliðskonur leika í riðlakeppni Meistaradeildar kvenna í fótbolta í vetur og tvær þeirra mætast en dregið var í riðlana í gær. Bayern München, með Glódísi Perlu Viggósdóttur sem fyrirliða, er í riðli með norsku meisturunum Vålerenga en með þeim leikur Sædís Rún Heiðarsdóttir. Sveindís Jane Jónsdóttir og Wolfsburg mæta m.a. Lyon og Roma, og Twente, sem Amanda Andradóttir leikur með, er með Chelsea og Real Madrid í riðli.