Kjartan Jarlsson fæddist 17. september 1952. Hann lést á Hjúkrunarheimilinu Sólvangi í Hafnarfirði 20. september 2024.

Foreldrar Kjartans voru Kristín M. Bjarnadóttir og Jarl Sigurðsson, bæði látin. Kjartan var næstyngstur af fimm systkinum. Hin eru: Þröstur, f. 1944, Bjarni, f. 1949, Sigurður, f. 1950, og Kolbrún, f. 1955.

Kjartan giftist eftirlifandi eiginkonu sinni, Ingibjörgu Jónsdóttur kennara, þann 17. september 1982. Saman eignuðust þau tvær dætur. Þær eru Íris Ósk, f. 11. apríl 1984, og Lilja Guðrún, f. 24. janúar 1986. Barn Írisar er Emil Kári, f. 2. nóvember 2018. Börn Lilju Guðrúnar eru Alexander Freyr og Kristinn Jarl, f. 5. desember 2016. Sambýlismaður Lilju er Karl Víðir Magnússon og á hann tvö börn úr fyrra sambandi, Eirík Þór, f. 28. maí 2009, og S. Unni, f. 24. september

...