Þór frá Akureyri vann sinn fyrsta titil í körfuboltanum í hálfa öld þegar kvennalið félagsins vann Íslands- og bikarmeistara Keflavíkur, 86:82, í Meistarakeppni KKÍ í Keflavík á laugardaginn. Amandine Toi skoraði 31 stig fyrir Þór og Madison Sutton…

Þór frá Akureyri vann sinn fyrsta titil í körfuboltanum í hálfa öld þegar kvennalið félagsins vann Íslands- og bikarmeistara Keflavíkur, 86:82, í Meistarakeppni KKÍ í Keflavík á laugardaginn. Amandine Toi skoraði 31 stig fyrir Þór og Madison Sutton skoraði 21 stig og tók 28 fráköst.

Bikarmeistarar Keflavíkur unnu Íslandsmeistara Vals, 98:88, í Meistarakeppni karla í Keflavík á laugardagskvöldið. Wendell Green skoraði 26 stig fyrir Keflavík og Taiwo Badmus 24 stig fyrir Valsmenn.

Orri Steinn Óskarsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, sló í gegn með Real Sociedad þegar liðið mætti Valencia í spænsku 1. deildinni á laugardaginn. Hann kom inn á sem varamaður á 61. mínútu og skoraði tvö mörk fyrir Real Sociedad sem vann leikinn 3:0.

...