Eyjólfur Skúlason fæddist 28. desember 1956. Hann lést 26. ágúst 2024.

Útför fór fram 7. september 2024.

Þegar litið er um öxl yfir árin sem við áttum með Eyjólfi bróður okkar þá er margs að minnast. Hann var alla tíð fremstur í okkar systkinahópi þegar valið var um að stíga fram fyrir hönd fjölskyldunnar. Hann var án orða sjálfkjörinn og mátti þá einu gilda hvort stigið var á stærra svið eða sagðar sögur í þrengri hóp, hann var alltaf leiðandi og þannig vildum við líka hafa það.

Eyjólfur hafði einstaka frásagnarhæfileika sem nutu sín þegar svo háttaði til og þó sögurnar hafi kannski sumar tekið léttvægum breytingum í áranna rás þá var bara enn meiri skemmtan á að hlýða og hlæja saman löngum stundum.

Eyjólfur var mjög listhneigður og hagur bæði á tré og járn.

...