Hulda Jónasdóttir fæddist í Fagranesi, Aðaldal, Suður-Þingeyjarsýslu, 12. desember 1929. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Húsavík 15. september 2024.

Foreldrar Huldu voru Jónas Guðmundsson frá Grímshúsum, f. 13. ágúst 1903, d. 13. desember 1952, og Þuríður Hólmfríður Guðmundsdóttir frá Fagranesi, f. 9. mars 1901, d. 3. desember 1986.

Systur Huldu eru Ásgerður, f. 26. ágúst 1934, búsett í Reykjavík, og Jónína Þórey, f. 5. júní 1939, búsett í Kópavogi.

Hinn 3. september 1950 giftist Hulda Kristjáni Blæ Ásmundssyni frá Lindahlíð, f. 28. október 1925, d. 4. mars 2016. Foreldrar hans voru Helga Hernitsdóttir frá Sýrnesi, f. 30. október 1900, d. 27. október 1990, og Ásmundur Kristjánsson frá Mýlaugsstöðum, f. 10. október 1899, d. 28. júní 1971.

...