Ólafur Ómarsson fæddist 20. febrúar 1975. Hann lést 1. ágúst 2024 á Spáni.

Útförin fór fram 4. september 2024.

Það er nístandi ósanngjarnt, með miklum söknuði og erfiðara en tárum taki að vita til þess að þú sért farinn frá okkur, eftir sit ég með margar erfiðar spurningar sem ég fæ ekki svarað! Ég hugsa til þín með hlýju, elsku Óli minn, um allar okkar óteljandi góðu stundir sem lifa að eilífu. Það verða fagnaðarfundir þegar ég hitti þig aftur hinum megin!

Elska þig litli bróðir.

Þín stóra systir,

Lára.