Haukur Guðlaugsson fæddist 5. apríl 1931. Hann andaðist 1. september 2024.

Útför Hauks fór fram 20. september 2024.

Elskulegur pabbi minn hefur lokið sinni jarðvist hér og er kominn á fund Braga okkar sem við söknum sárt. Ég minnist þess þegar ég ætlaði til Rómar, hann var svo spenntur, gaf mér aur fyrir kaffibolla sem ég átti að fá mér á Cafe Greco. Hann var áhugamaður um matargerð, góð var síldin sem hann lagaði og lúðusúpan var sérstök sem og annað. Honum fannst mikilvægt að allir gætu verið í sátt og samlyndi. Kóramótin í Skálholti sem þú gerðir möguleg af þinni alkunnu snilld og var dásamlegt að taka þátt í. Ég sakna þess að nú munt þú ekki hringja bara til að heyra í mér röddina eins og þú sagðir.

Pabbi minn, þakka þér fyrir allt og allt. Hvíl í

...