Dikembe Mutombo
Dikembe Mutombo

Dikembe Mutombo, einn besti varnarmaðurinn í sögu NBA-deildarinnar í körfuknattleik, er látinn, 58 ára að aldri, eftir rúmlega tveggja ára baráttu við krabbamein.

Mutombo var frá Kongó og lék lengst með Denver, Atlanta og Houston, en einnig með Philadelphia, New Jersey og New York. Hann spilaði í deildinni frá 1991 til 2009 og var 43 ára þegar hann lagði skóna á hilluna. Hann var fjórum sinnum valinn besti varnarmaður NBA-deildarinnar og tók átta sinnum þátt í Stjörnuleik NBA.