Haukur Camillus Benediktsson, framkvæmdastjóri fjármálastöðugleikasviðs Seðlabanka Íslands, segir að þótt takmarkaðar vísbendingar séu fyrir hendi enn sem komið er þá gæti það farið svo að vanskil aukist í núverandi efnahagsumhverfi
Magdalena Anna Torfadóttir
magdalena@mbl.is
Haukur Camillus Benediktsson, framkvæmdastjóri fjármálastöðugleikasviðs Seðlabanka Íslands, segir að þótt takmarkaðar vísbendingar séu fyrir hendi enn sem komið er þá gæti það farið svo að vanskil aukist í núverandi efnahagsumhverfi.
Þrátt fyrir hátt vaxtastig segir Seðlabankinn enn lítil merki um vaxandi greiðsluerfiðleika á útlánum banka til heimila.
Haukur segir Seðlabankann fylgjast vel með stöðunni og að hann sjái enn sem komið er engin sérstök hættumerki.
„Við erum alltaf að fylgjast með og vanskil gætu farið að aukast hjá heimilum og fyrirtækjum. Viðnámsþróttur heimila og fyrirtækja er þó mikill um þessar
...