Sérverslunin Eirberg, sem rekin hefur verið á Stórhöfða í Reykjavík og í Kringlunni, hefur ákveðið að opna verslunina í Kringlunni ekki á ný eftir brunann sem varð í verslunarmiðstöðinni í júní síðastliðnum.
Verslun Eirbergs var ein fjölda verslana Kringlunnar sem urðu fyrir altjóni vegna brunans.
„Árin okkar tíu í Kringlunni voru farsæl og góð en svo kemur þetta áfall sem reynist meira en maður hélt í byrjun,“ segir Kristinn Johnson framkvæmdastjóri Eirbergs í samtali við ViðskiptaMoggann.
Hann segir aðspurður að allar innréttingar og innanstokksmunir hafi orðið fyrir vatnsskemmdum. „Við sáum strax að verslunin yrði ekki starfhæf í langan tíma.“
Kristinn segir að í kjölfarið hafi stjórnendur Eirbergs ákveðið að líta inn á
...