— Morgunblaðið/Eggert

Upphafi árvekni- og fjáröflunarátaks Krabbameinsfélagsins, sem helgað er baráttunni gegn krabbameinum hjá konum, var fagnað í Háskólabíói í gær. Fjöldi lagði leið sína á opnunarhófið, margir hverjir í bleikum flíkum, enda ber átakið nafnið Bleika slaufan. Í ár fagnar Krabbameinsfélagið 25 ára afmæli Bleiku slaufunnar á Íslandi. Slaufuna í ár hannaði Sigríður Soffía Níelsdóttir fjöllistakona.