Hrönn Pálsdóttir fæddist í Reykjavík 4. apríl 1955. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 15. september 2024.

Foreldrar hennar voru Páll Helgason vélsmiður frá Patreksfirði, f. 26. maí 1928, d. 21. janúar 2001, og Jónína Jakobsdóttir húsfreyja frá Hnífsdal, f. 19. júní 1927, d. 23. desember 1995.

Hrönn ólst upp á Þinghólsbraut 54 í Kópavogi með foreldrum sínum og systkinum, þeim Guðbjörgu Helgu, f. 7. maí 1952, og Helga Arent, f. 7. mars 1961, d. 5. apríl 2015. Hann var ógiftur og barnlaus.

Maki Helgu er Guðlaugur Valgeirsson, f. 6. desember 1953, og eru þeirra börn Páll, Valgeir, Árni Arent og Kristín Lórey.

Eftirlifandi maki Hrannar er Egill Helgi Kristinsson, f. 15. febrúar 1954, en þau gengu í hjónaband árið 1974. Synir Hrannar og Egils eru

...