Helga Valdimarsdóttir fæddist 2. maí 1951 í Reykjavík. Hún var bráðkvödd á hjúkrunarheimilinu Móbergi á Selfossi 23. september 2024.

Foreldrar hennar voru Valdimar Guðmundsson skipstjóri, f. 18.11. 1913, d. 20.5. 1990, og Jóhanna Eyjólfsdóttir húsmóðir, f. 3.10. 1915, d. 9.12. 1984. Bræður Helgu eru Valdimar, f. 10.1. 1948, d. 27.3. 2001, og Eyjólfur, f. 23.12. 1949.

Helga giftist Óskari Alfreðssyni, f. 7.2 1944, þann 27. maí 1978, þau skildu 1998. Börn þeirra eru: 1) Jóhann Gunnar Óskarsson, f. 18.7. 1979, búsettur á Filippseyjum. 2) Lóa Björk Óskarsdóttir, f. 14.1. 1981. Eiginmaður hennar er Bjarni Ingvar Halldórsson, f. 15.8. 1977, þau eru búsett á Stokkseyri. Börn þeirra eru: a) Halldór Ingvar, f. 3.8. 2001, í sambúð með Natalíu Emblu Þórarinsdóttur, f. 7.7. 2003, þau eru búsett á Eyrarbakka, b) Vésteinn Haukur f. 31.8. 2006, c) Eyrún Arna,

...