Steingrímur Óli Fossberg Andrésson fæddist 1.7. 1988 í Neskaupstað og lést 19.9. 2024 á Eskifirði.

Foreldrar hans eru Andrés Kolbeinn Steingrímsson, f. 9.12. 1965 og Hulda Kristín Fossberg Óladóttir, f. 24.10. 1969, búsett á Eskifirði.

Systkini hans eru: Hjördís Bára Fossberg Andrésdóttir, f. 30.9. 1991 og Ægir Óli Andrésson, f. 15.1. 1987. Börn Hjördísar eru Tómas Steinn Fossberg Sindrason, f. 29.10. 2011 og Andrea Íris Fossberg Ástþórsdóttir, f. 5.2. 2016. Steini á tvær dætur með Sigrúnu Jóhannsdóttur, þær heita Anna Kristín Fossberg Steingrímsdóttir, f. 9.5. 2015 og Selma Líf Fossberg Steingrímsdóttir, f. 18.4. 2020.

Foreldrar Andrésar voru Steingrímur Kolbeinsson, f. 21.4. 1944, d. 5.7. 2006 og Hjördís Arnfinnsdóttir, f. 5.3. 1943, d. 2.6. 2014. Foreldrar Huldu voru Óli Fossberg

...