Guðný Björgvinsdóttir fæddist 29. júní 1953. Hún lést 9. september 2024.

Útför Guðnýjar fór fram 24. september 2024.

Amma mín var ofuramma. Hún elskaði barnabörnin sín meira en allt og gerði allt fyrir okkur. Allir tíu þúsund kallarnir sem hún laumaði ofan í vasa minn svo að mamma myndi ekki sjá, allar búðarferðirnar, allir kvöldmatartímarnir saman.

Mér leið alltaf þægilega með og heima hjá ömmu. Ég mun aldrei gleyma öllum stundunum heima hjá henni, öllu namminu sem var borðað, öllum hlátrinum og öllum Facebook-kveðjunum sem ég þurfti að skrifa fyrir hana. Það ættu allir að fá að eiga ömmu eins og ég átti en ég veit að annað eintak eins og hana er ekki hægt að finna.

Ég og við öll vorum mjög heppin að eiga hana að.

Hvíldu

...