Spænski knattspyrnumaðurinn Andrés Iniesta hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir afskaplega farsælan feril. Lengst af lék hann með Barcelona, á árunum 2002 til 2018. Vann Iniesta Meistaradeild Evrópu fjórum sinnum, spænsku deildina níu…

Spænski knattspyrnumaðurinn Andrés Iniesta hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir afskaplega farsælan feril. Lengst af lék hann með Barcelona, á árunum 2002 til 2018. Vann Iniesta Meistaradeild Evrópu fjórum sinnum, spænsku deildina níu sinnum og spænska konungsbikarinn sex sinnum auk þess að verða heimsmeistari félagsliða þrívegis. Þá skoraði hann sigurmarkið á HM 2010.