Dómarar Svavar Ólafur Pétursson og Sigurður Hjörtur Þrastarson.
Dómarar Svavar Ólafur Pétursson og Sigurður Hjörtur Þrastarson. — Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Sigurður Hjörtur Þrastarson og Svavar Ólafur Pétursson munu í sameiningu dæma leik þýska liðsins Flensburg og króatíska liðsins Sesvete í fyrstu umferð riðlakeppni Evrópudeildar karla í handknattleik næstkomandi þriðjudag. Handbolti.is vekur athygli á því að Sigurður og Svavar muni koma til með að dæma leikinn, sem fer fram í Flensburg. Þá verður Kristján Halldórsson eftirlitsmaður á leik þýska liðsins Kiel og spænska liðsins Torrelavega.