Wales Joe Allen er hættur við að hætta og mætir íslenska liðinu.
Wales Joe Allen er hættur við að hætta og mætir íslenska liðinu. — AFP

Velski knattspyrnumaðurinn Joe Allen er hættur við að hætta að spila fyrir landslið þjóðarinnar og verður hann í hópnum sem mætir Íslandi og Svartfjallalandi í Þjóðadeildinni síðar í mánuðinum. Hinn 34 ára gamli Allen hætti með landsliðinu eftir HM í Katar í lok árs 2022. Craig Bellamy landsliðsþjálfari Wales hefur hins vegar náð að sannfæra Allen um endurkomu, en nokkra miðjumenn vantar í velska liðið vegna meiðsla.