Elías Rafn Ólafsson hélt marki Midtjylland hreinu þegar liðið heimsótti Maccabi Tel Aviv frá Ísrael í 2. umferð Evrópudeildarinnar í knattspyrnu í Belgrad í Serbíu í gær. Leiknum lauk með sigri Midtjylland, 2:0, en danska liðið er með 4 stig í 10. sætinu.
Orri Steinn Óskarsson lék fystu 75 mínúturnar með Real Sociedad frá Spáni þegar liðið tók á móti Anderlecht frá Belgíu í San Sebastian á Spáni. Leiknum lauk með sigri Anderlecht, 2:1, en öll mörk leiksins komu í fyrri hálfleik. Real Sociedad er með með 1 stig í 25. sætinu.
Kristian Nökkvi Hlynsson var í byrjunarliði Ajax frá Hollandi sem heimsótti Slavia Prag í Prag í Tékklandi en leiknum lauk með jafntefli, 1:1. Kristian Nökkvi lék fyrstu 42 mínútur leiksins, áður en hann fór meiddur af velli, en Ajax er með 4 stig í 6. sætinu.
...