September Haustlitirnir settu sinn svip á mánuðinn sem endranær.
September Haustlitirnir settu sinn svip á mánuðinn sem endranær. — Morgunblaðið/Eyþór

Nýliðinn september var óvenjukaldur um allt land. Á landsvísu hefur september ekki verið eins kaldur síðan 2005. Meðalhiti mánaðarins var undir meðallagi áranna 1991 til 2020 og síðustu tíu ára á öllum veðurstöðvum. Á nokkrum stöðvum mældist lægsti meðal- og/eða lágmarkshiti sem mælst hefur í september.

Þetta kemur fram í tíðarfarsyfirliti Veðurstofu Íslands.

Loftþrýstingur var hár í mánuðinum og sólríkt var bæði í Reykjavík og á Akureyri.

Meðalhiti í Reykjavík í september var 6,9 stig. Það er 1,7 stigum undir meðallagi áranna 1991 til 2020 og 1,8 stigum undir meðallagi undanfarins áratugar. Raðast mánuðurinn í 113. sæti af 154 mældum mánuðum.

Á Akureyri mældist meðalhitinn 5,6 stig sem er 2,4 stigum undir meðallagi 1991 til 2020. Meðalhiti mánaðarins var 6,2 stig

...