Breska sjónvarpsstjarnan og áhrifavaldurinn Alfie Watts heimsótti Reykjavík ásamt besta vini sínum Owen Woods á dögunum þar sem þeir reyndu að afsanna það að allt væri dýrt á Íslandi. Þetta gerðu þeir með því að keppast við að finna ódýrustu tveggja rétta máltíðina í miðbæ Reykjavíkur. Þeir deildu myndbandi af áskoruninni á TikTok í vikunni. Ungu mennirnir gengu lengi milli veitingastaða í miðbænum í leit að tveggja rétta máltíð á lágu verði. Alfie vann keppnina með taílenskum karrírétti og ís.

Nánar um málið á K100.is.